Nov 24th, 2011 by Valbjörn Júlíus Þorláksson
Orðsending frá sóknarnefnd Raufarhafnarkirkjugarðs
Nov 15th, 2011 by Valbjörn Júlíus Þorláksson
Miklar endurbætur hafa verið gerðar í rafmagnsmálum í kirkjugarði Raufarhafnar.
Ekki verður hægt að notast við gömlu tenglana á ljósakrossana. Því verður að kaupa nýja kló og snúru.
Sóknarnefnd hefur gert samning við Óskar í áhaldahúsinu um að selja og afhenda nýjar klær.
Verð á kló er 3.300 kr.
Greiðsla verður að fara í gegnum banka og framvísa verður kvittun til að fá klærnar afhentar.
Banka og reikningsnúmer 1129-05-406269 kennitala kirkjugarðs 530269-3459.
Athugið!!
Endilega látið vini og vandamenn vita af þessum breytingum.
Sóknarnefnd Raufarhafnarkirkju
Þorrablót í Hnitbjörgum!
Dec 23rd, 2010 by Valbjörn Júlíus Þorláksson
Þorrablótsnefndin á Raufarhöfn vill koma þeim upplýsingum á framfæri að Þorrablótið 2011 verður haldið laugardaginn 5. febrúar í félagsheimilinu Hnitbjörgum.
Hljómsveitin Kokteill mun að sjálfsögðu leika fyrir dansi Nú er mikilvægt fyrir ykkur öll að taka daginn frá…
Sjáumst..

Facebook síða Raufarhofn.net
Dec 21st, 2010 by Valbjörn Júlíus Þorláksson
Smelltu hér! og vertu með okkur á Facebook. Þar eru sendar út tilkynningar um viðburði sem eiga sér stað svo þið missið nú ekki af neinu
kv.
Valbjörn Júlíus
Aðalfundur 2010
Sep 16th, 2010 by Valbjörn Júlíus Þorláksson
Aðalfundur Raufarhafnarfélagsins verður haldinn á Kringlukránni
24. september næstkomandi kl. 21:00
Dagskrá
Venjuleg aðalfundarstörf
Reikningar lagðir fram
Kosning stjórnar
Önnur mál
Stjórnin
Sjómannadagurinn 2010
May 19th, 2010 by admin
Sjómannaballið 2010 verður haldið í félagsheimilinu hnitbjörgum laugardaginn 05. júní og stendur frá kl. 24:00 til kl. 04:00.
Magni og hljómsveitin „Strákarnir í engum fötum” leika fyrir dansi á ekta stuðballi.
Aðgangseyrir er kr. 2.500
Stórdansleikur
Ballið er eins og alltaf til tekjuöflunar fyrir Björgunarsveitina.
Smellið á myndina til að sjá auglýsinguna
Vöfflukaffi Raufarhafnarfélagsins
Feb 16th, 2010 by admin
“Vöfflukaffi” Raufarhafnarfélagsins verður haldið í sal Húnvetningafélagsins, 21. febrúar n.k.(KONUDAGINN) kl.15:00-17:00.
Nú er kjörið tækifæri fyrir herrana að bjóða konunum í gott kaffi,(tertur og brauðtertur), sem hvergi fæst ódýrara.
Vonumst til að sjá sem flesta.
67 ára og… eldri frítt.
10-66 ára 1.000 kr.
Þorrablót 2010
Jan 28th, 2010 by admin
Þorrablót 2010
Hið árlega þorrablót Raufarhafnar verður haldið í Félagsheimilinu Hnitbjörgum laugardaginn 6. febrúar. Miðasala verður sama dag frá kl. 12 – 13.30, miðaverð er það sama og undanfarin ár eða kr. 3000. Hægt er að panta borð fyrir hópa í síma 8941178, hjá Gunnu, eða senda tölvupóst á netfangið urd@simnet.is.
Húsið opnar kl. 19.30 og borðhald hefst kl. 20.00.
Húsið opnar svo aftur að skemmtidagskrá lokinni, ca. 23.30 fyrir þá sem vilja mæta á dansiballið J Hinir einu og sönnu GREIFAR munu spila fyrir dansi af alkunnri snilld.
Fyrriparturinn í ár er svohljóðandi :
Á þorragleði kýlum kvið
og kneyfum öl að vanda
Veitt verða verðlaun fyrir besta botninn og þurfa botnar að hafa borist í Verslunina Urð fyrir kl.18 föstudaginn 5. febrúar undir dulnefni.
Hótel Norðurljós býður upp á þorrabakka og gistingu á sanngjörnu verði, sími þar er 465-1233 og netfang ebt@vortex.is.
Vonum að sem flestir sjái sér fært um að mæta og gleðjast með okkur J Nefndin.
Jólatrésskemmtun Raufarhafnarfélagsins
Dec 20th, 2009 by admin
Jólatrésskemmtun félagsins verðun haldin í Húnabúð, Skeifunni 11 ,27.desember 2009
frá kl 14:00 – 16:00.
Aðgangseyrir er kr 5oo fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir börnin okkar yngri en 16 ára.
Um leið og við þökkum samfylgdina á liðnu ári óskum við ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Stjórnin.
Vinsamlega ath.
Ekki er hægt að greiða aðgangseyrir á jólaballið með greiðslukortum, svo munið að renna við í hraðbankanum.
Kokkteill 20 ára!
Oct 27th, 2009 by admin
Kæru félagar
Þá er komið að því að Raufarhafnarhljómsveitin Kokkteill slái í gegn í Reykjavík.
Í tilefni að því að þessi lífseiga hljómsveit er búin að skemmta Raufarhafnarbúum í rúm 20 ár ætla þeir að halda afmælistónleika og svo að sjálfsögðu ekta Raufarhafnardansleik á eftir.
Tónleikarnir eru n.k Laugardagskvöld 31 október í norðursalnum á Broadway og hefjast kl 21:00 Og strax á eftir eða kl 23:00 hefst ballið og þá verður spilað fram á rauða nótt. Og miðaverð er einungis 1800 kr og gildir miðinn að sjálfsögðu á báða viðburðina.
Á þessum 20 árum hafa ýmsir spilað og sungið með hljómsveitinni Kokkteil og var þeim öllum boðið að koma og spila á tónleikunum og þáðu flestir boðið,en á dansleiknum mun Kjarnahljómsveitin spila.
Vonandi sjáumst við sem flest núverandi og fyrrverandi Raufarhafnarbúar og nærsveitarmenn og skemmtum okkur vel saman á þessum einstaka viðburði.




Raufarhafnarfélagið var stofnað 1998, kt. 681298-2669